Jóhanna huld :)
11.10.2008 01:25:48 / johannah

blönduós

halló

ég er komin á blönduós, kom seinnipartinn.
miðannaprófin eru byrjuð, var ekki í neinum prófum í gær
og einu prófi kl 14:45 í dag í dönsku.
svo eru 4 próf í næstu viku -__-

ég stoppa stutt hérna, fer á akureyri á morgun með pabba
ætlum að kíkja, fara út að borða og í bíó :D
svo á sunnudaginn fer ég með erling til rvk og
komum aftur á mánudaginn beint á krókinn :)
þvælingur á mér ;p

veit bara ekkert hvað eg a að blogga um :p





nýnemi =D





                                                                                     bleess





» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 22:07:52 / johannah

seeeeeeeeeeeríos



Hallo !
var að koma á krókinn og leiðist smáá svo eg bara blogga :D
fór til rvk um helgina, fekk far með Kollu og Helen Töru :)
lagði ekki af stað frá blö fyrr en e'h um 3 um nóttina,
 það var sjukt hált þannig að við vorum svoldið lengi á leiðinni,
en komum samt rúmlega 6 þangað!

eg fór bara að sofa, þuríður var að vinna til 1 og eg svaf bara meðan
svo þegar hun kom fórum við í kringluna, versluðum smotterí
fórum svo heim, skiptum um föt og fórum í miðbæ að borða :)
röltum niður laugarveginn, hittum nokkra fyllirafta,
og svo fórum við á Tabasco að borða,
aðalrétt og eftirrétt, geðveikt gott :D


borða á tabasco

tabasco :D

svo á leiðinni í hlemm var svo ógeðslega kalt að við smeygðum okkur
inn í allar búðir sem voru opnar :p
fórum í 10-11 og þar var einn fimmtugur spánverji sem
horfði getnaðarlega á þuríði og bauð henni svo að koma með sér
að fá sér kaffi, bara þau tvö :p
hún sagði nei og við forðuðum okkur og hann elti okkur í búðinni
svoo við tókum á rás út :')
tókum svo strætó í kringluna og fórum á ööömurlega bíómynd
entumst í korter og fórum svo bara heim og spjölluðum :)



svo i dag var þuríður að vinna aftur til 1 og ég vaknaði bara kl 11
kíkti í bakaríið til hennar, fór í apótekið og keypti mer e'h
þuríður kom svo heim ur vinnunni og við spjölluðum bara i sma
þangað til Kolla kom og sótti mig um tvö leitið.

svoo þegar eg kom á blö kíkti ég bara til paps
og svo kom móðir heim, við borðuðum og héldum
á sauðárkrók .
Karen kemur einhverntíman á eftir, veitekki alveg hvenær.




aaanyway
ekkimeiraaðsegjasvobæ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 18:05:50 / johannah

.............

guden aften !
litla systir ella hérna ?
vitiði.
ég var að komast að því að þegar ég kalla á bróðir minn í skólanum þá veit ekki helmingurinn hvern ég er að kalla á.
Það vita allir hverjir Elli er, en það veit samt ekki helmingurinn og þá er ég að tala um vini hans líka,vita ekki að hann heitir Erling :p
fannst sniðugt að komast að þessu!



hver vill ekki dást að rassinum
(og part af öðru) á gumma polo ?
ég held allir vilji þetta sko :D                   svo magni hérna megin. hann er að sökka :D



aaaanyhow .
ég er að fara til rvk til þuríðar  :D can't waaaaaait ;D
spurning hvort maður kíki á þá þarna í paintball.
held samt ekki að ég nenni því eitthvað ! :)

allavega fer ég með kollu og þeim á morgun, seinnipartinn
og fer heim á mánudaginn með flutningarbíl líklegast :D



ooog karen er best bæ.




ég og erla, gömul og góð (y)

» 11 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 18:51:44 / johannah

laufskálarétt

            sæl!

laufskálaréttin var í gær.
sumir byrjuðu að drekka kl 11 um morguninn, fjör á fólki :D
ég og karen fórum í réttina um tvö og það var fjöör, mamma kom og kíkti,
hitti sonju og kristbjörgu, rölti með þeim og hittum helling af liði og svoleiðis :)

svo fórum við heim og fengum okkur að borða og svoleiðis,
anna sigga kom í heimókn :)
hékk með okkur, hilmar, stefán og benni komu líka ;p

svooo var ballið !
við biðum eendalaust eftir drivernum okkar, en hann kom loksins
um tólf leitið, og förinni var haldið í reiðhöllina.
þetta var ooof gaman, hittum Heiðu þegar við komum og tjuttuðum með henni:p
svo fórum við bara og hittum fullt af fólki og svoleiðis ;p



nenni ekkert að lýsa þessu betur.
comment ?



bæjo.


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 20:09:52 / johannah

dugleg stelpa, neei


ég veit ég er ekki dugleg .
EN ég hef þessa ágætu afsökun að netið hefur ekki verið til staðar, hvorki hérna, né heima í holunni.
Allavega, ég fór heim á föstudaginn, mjög gaman.
gerði bara eiginlega ekkert, fór til karenar og horfðum á mynd .
svo í gær svaf ég út, dásemd sem það var, og svo í gærkvöldi jakob á blö.
kíktum a runtinn með honum og ég komst að þeirri niðurstöðu að ég nennti ekkert að vera á blönduósi, svo ég fór heim, henti draslinu í tösku og fór með honum á krókinn!
þegar við komum á krókinn fórum við og skiptum yfir í partýgallann og fórum á rútninn, sóttum elínu árdísi og þvíumlíkt.
einhver hringdi í jakob og sagði honum að drullast á ball á ólafsfirði og við hugsuðum ekki tvisvar um og fórum í roadtrip kl 1.30 laugardagsnótt :p .
sóttum kæróið hennar Elínar og tókum Steffý upp í á leiðinni.

komum um 3 leitið og komumst að því að ballið var búið og bærinn var dauður :p
sóttum þennan vin jakobs og Hilmi sem voru veel hressir og tókum góðan rúnt.
og svo keyrðum við bara aftur á krókinn.
annars var þetta bara ágætt. 



eg & þurídur oofur hressar í réttunum :)




bæbæ ;d

svo svaf ég í allann dag og hef aðeins komið 2 hlutum í verk.
vera í tölvunni og éta :)
kvarta ekkert! ;p



» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2008 20:14:29 / johannah

réttir <3

suup

var að koma úr réttum :D
svaaaðalegt fjör :D vaknaði kl 7.30 en fór svo ekkert fyrren kl 9.30 eða svo,
hitti þuríði og dróg helling með þeim og endaði svo á að draga bara eitthvað
fyrir einhvern :p en það var mjög gaman ..
þessi vika er búin að líða ótrúlega hratt, var bara farin áðuren ég vissi af sko.

svo eru alveg þrjááár góðar vikur þangað til ég kem aftur á blö.
lilja ætlar að koma næstu helgi og gista yfir helgina :D
oog svo helgina eftir það er laufskálarétt :)

æi ég er eekki góð í þessu blogg dæmi,
 veit aldrei hvað ég á að segja :p
skelli bara einni góðri af okkur mæðgum <3








bæjo ;d

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 22:20:35 / johannah

sirkus :d

sælinu  :d
var buin að blogga helling í dag en nee kom villa í kerfi eða eh rugl svo ég þurfti að gera allt uppá nýtt -_-
oooolræd.
ég var ´buin í skólanum kl 17.00 og þá fórum við på runten og svo kiktum við i sirkus, ég, heiða, karen og kolla :d geðveikt stuð sko :D ooofurliðugt fólk og alveg ótrúlega fyndinn gaur á trampólíni :D hef sjaldan hlegið eins sko.

allavegana er ég að spá í að starta þessari síðu fyrir ykkur sem
sakna mín svo sárt þarna á blö, rvk, skagaströnd og nefndu það :D

skólinn er buinn að ganga vel bara,
busunin loks búin og eftir 2 sjampó brúsa, nuddolíu og
5 sturtuferðir náði maður loks júgursmyrslinu úr hárinu :p
svo fórum við á blö á laugardaginn með 4 stútfulla innkaupapoka
af mygluðum fiskifýlu-mysu-haframjöls-tómatsósu-blabla fötum :p
næææææææææs sko :d

svo var ofcourse busaball á föstudaginn,
hörkustuð á því :d
förum ekkert út í smáatriðin ;p
hahaha :D

nenni bara enganvegin að blogga meira, þannig að vi ses ;d



jóhanna





roommates <3

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 20:31:03 / johannah

zup ;p

sæææl
svoldið langt síðan´eg bloggaði síðast :p
um helgina voru smábæjarleikar, ég kíkti á þaaað, skaggarnir komu og líka vilborg og anna maría <3 :D
annars eru flutningar næst á dagskrá! við erum búin að vera á fullu að vinna í húsinu og að pakka, ég er búin að vera að drullumalla með einhverja fúgu og þrífa það, og það er nóg að gera.
svo stendur til að flytja á laugardaginn, við afhendum húsið á mánudaginn, svo þetta er allt að bresta á!
ég er nýbúin með 4 daga fríið mitt, svo núna er bara að vinna vinna vinna, verð að vinna um helgina og læti, reyndar frí á föstudaginn
ooog svo er húnavaka eftir rúmlega 2 vikur ;o :D
er reyndar að vinna þá helgi ;/ ætla að reyna að redda einhverjum til að vinna fyrir mig á sunnudeginum samt :)

22-3. júní 2008 011 

vilborg og anna maría <3
elska þetta barn ;* :D

18.19,20 júní 2008 007 

afi var að saga og mér var skipast að leggjast ofan á til að spýtan færðist ekki
eitthvað skilst mér að það var kaldhæðni og ég átti ekkert að taka það alvarlega :p
en gagn var þó í mér :D

allaaaaavega, ég er farin að hitta karen mína :D

bææjó :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 22:30:19 / johannah

17 júní (y)

jææææja !
komin heim frá rvk, var hjá þurídi sem var aaaawesomm :D
fór med rútunni á föstudaginn, forum bara ad tala saman og allt og svo ad sofa ;p
svo laugardaginn forum vid i hadegismat a jomfrunna med famelíunni hennar, vodalega kósí :D
eg er víst ordin partur af henni hah :p
svo forum vid i bæinn ad versla :D keyptum fullt af hringjum og solgleraugu og þannig dot :D
svo um kvöldid fórum vid a sex and the city sem er gedveik sko :D



sunnudaginn fórum vid í kringluna, keyptum okkur hárlengingar,
 ég keypti mer kjól, bol og bleeikar buxur ójee :D
fengum okkur ad eta og hittum erling&co sem voru ad fara a handboltaleik :)
svo um kvöldid tjiiilludum vid eh, grill um kvöldid med famelíunni ;d



svo a manudeginum var þuridur ad vinna til 5 svo eg svaf bara ut og slakadi eh á bara
lék vid litlu systur hennar og eh haha :p
svo kom hun heim og um kvoldid forum vid a Zohan med frímidana hennar þuridar :p


í dag forum vid nidur i bæ, keyptum allskonar drasl, eg fekk mer e'rja blodru sem
var ofurskemmtó, og helíum blödru, allir ad hlægja ad okkur þvi vid vorum ad sjuga þad
og gera fyndna rödd hahah :p
vorum annars bara eh flippin og svo þurfti eg ad fara med rutunni kl 5 :(
kom svo um 9 leitid a blö


nenni ekki meir
bææjo ;d

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 12:39:01 / johannah

..



jæja helgin búin!
það var dalton ball á laugardaginn sem var of gaman sko!
ooog núna eru allir farnir í vinnuna á ný!
karen er ein á blönduvirkjun, þóra hætti
langar svoldið að fara að vinna þarna með henni, en ég veit ekki......

ég fer í vinnuna aftur á miðvikudaginn eftir 5 daga frí,
nenni eiginlega ekki að fara að vinna ;/
eeen mig vantar pening ef ég ætla í skóla í haust :p

vá ég veit ekkert hvað ég er að bulla hérna ..

nenni ekki að hafa þetta lengra, hef ekki neitt að segja,
skelli nokkrum myndum hérna með ;p




bekkurinn í adrenalíngarðinum



hellaskoðun



river rafting:D:D


paintball :p



en krúúúúúttlegt  :p xD



buuuuiid

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 23:50:05 / johannah

útskrifuð og læti

jæja !

þá er maður útskrifaður úr grunnskóla, sumarfríið byrjað en entist ekki lengi því ég er byrjuð að vinna -_- een þetta er svosem ekkert það slæm vinna :p þurfti samt að mæta kl 7 í morgun sem var eeeerfitt ;o
svo kl 8 á morgun, svo 2 kl 7 og svo 5 daga frí :haha:
næææs sko :)
svo er ég að fara í síðasta ökutímann á morgun, fæ semsagt æfingaleyfið á morgun :D
sem eru eiginlega sömu réttindi og prófið :p óójá passið ykkur, ég er að fara að rúnta um á bláu þrumunni x) (9 bekkur ber ábyrgð á nafninu xD)

jááá svo er þuríður í bænum :D og Ingvi reyndar líka en hann er ekkert mikið að láta sjá sig :p
við skelltum okkur á hvöt-tindastól í kvöld á króknum, við rústuðum þessu 5-0 :D
helljee hvöt er best (y)

allavega er ég ekki að vita hvað ég á að blogga um x)
svo þetta verður bara stutt í dag, vinna í fyrramálið og svoddan :)


bless :)




sæti bekkurinn minn :D
eða gamli bekkurinn ? :p


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 02:33:34 / johannah

útskriftarferð :D

sæl veriði :)
var að koma úr útskriftarferðinni miklu, SVAKALEG.. ætla aðeins að segja frá henni, en því miður gleymdi ég myndavélinni minni á miðjum snæfellsjökli svo það koma ekki myndir strax :(

sunnudagur; lögðum af stað kl 8 um morguninn og héldum beint í adrenalín garðinn sem var of geðveikur! ég reyndar er sjúúkt lofthrædd, en prufaði samt allt nema háloftabrautina. fór í stærstu rólu á íslandi sem var sjúúúk sko, þegar ég fór fyrst niður fann ég bara öll innyflin í maganum fara upp í mig :p
eftir það fengum við mat og svo í hellaskoðun sem var osomm, geðveikt myrkur þarna og fremsti leiðsögumaðurinn laug að mer að það væru til hellabýflugur og svona spes hellakóngulær sem eru miklu stærri en venjulegu -__- (trúði því ekki!! (a) )
svo fórum við á kajak, strákarnir hvolfdu bátnum mínum, svo datt ég og báturinn minn flaut í burtu, og ég náði honum ekki, þurfti að bíða á bátnum hans svans geðveikt lengi meðan fólk kom með minn x)
svo var sund og eftir það var farið að sofa :)

mánudagur; RIVER RAFTING :D:D það var geðveikt gaman, stökk af geðveikt háum klett ofan í ánna, bjóst ekki við að þora en ákvað að hugsa ekkert um það, stökkva bara, sem ég gerði :p allir héldu að ég myndi detta úr bátnum sem ég gerði EKKI (H) datt enginn..
fórum svo í ratleik í hveragerði, sem var svosem ágætur en minn hópur var SÚPER latur, fórum bara í bakaríið í rólegheitunum og gerðum ekki rassgat, gaurinn með þetta var orðinn geggjað pirraður, þurfti alltaf að bíða eftir okkur leeengi á stöðvunum :'D svo þurftum við að sjóða egg, fórum í hús þarsem 17 hópar höfðu komið að sjóða egg hjá þeim BARA á þessu ári ;o
fórum í sund og að eta og svo á veiðisafnið á stokkseyri sem var geðveikt flott!

þriðjudagur; byrjuðum á paintball, það var geeeeeeeeeeðveikt gaman! sjaldan skemmt mér jafn mikið, var að meika það þarna, er reyndar með duglegan marblett á lærinu eftir þetta og sköflungnum, en svona er þetta :p
svo fórum við í lasertag sem er líka geggjaaað gaman, nema reyndar þá SÖKKA ég haha x) hljóp líka 6 sinnum eða meira á vegg, hætti að telja á 4 haha :p
sund og svo í kringluna! fann mér ogeðslega flotta skó sem ég ætlaði að kaupa sem voru allstaðar búnir i minni stærð -_- en keypti svo á endanum fínustu skó helmingi ódýrari :p haha ég hugsa bara um að spara sko!
svo fórum við í bíó, réðum á hvaða mynd! skellti mér á Iron man, og lenti í þessu svakalega óhappi! var í hvítum kjól og eftir hléið þegar ég settist í sætið mitt var það rennandi blautt af kóki þannig að ég fór fram þegar allir voru örugglega farnir í salinn, stakk rassinum undir vatnsbunu og skolaði kókið burt (betra að vera blaut þarna heldur en með brúnann risastórann blett xp) svo stakk ég rassinum bara undir handþurrkuna :'')
svo í borganesi á leiðinni á ólafsvík tókst mér að girða kjólinn í brækurnar þegar ég kom af klóstinu -_- já ég er óheppin haha :p

miðvikudagur; þetta var svona meiri chill dagur, fórum upp á snæfellsjökul, sem var heldur tilgangslaust því það var svo svakaleg þoka að ekkert sást, ef þú labbaðir aðeins frá þarna snjótroðaranum þá sástu hann ekki :p
eftir það fórum við í breiðafjarðarsiglingu, strákarnir slitu fætur af kröbbum og ég bjargaði nokkrum :D hetja ferðarinnar sko! kauðarnir þarna veiddu slatta af kuðungum með kröbbum inní og venjulegum kröbbum, skelfisk, stjörnufiska, ígulker og allskonar :)
 fórum svo í sund, svo klæddum við okkur í fínu fötin og fórum á Narfeyrarstofu eða eitthvað í þá áttina, voðalega fínt og gott :) svo héldum við heim á leið.

í dag var útihátíðin, mættum á hana í síðasta skipti :D rústuðum 9 bekk í reipitogi en töpuðum samt fyrir kennurunum, en þeir voru svona 30 en við 14 eða svo :')
þegar þetta var búið fórum við karen heim og grilluðum pulsur, nenntum ekki að fá okkur þarna í skólanum því ég mátti ekki borða neitt af þessu sem átti að fara á pulsuna og þannig ..
trampó bara í allann dag og svo fórum við á síðustu skólaslitin okkar :D:D:D
fékk ágætis einkunnir barasta, fáum samt úr samræmdu á morgun, og ég er eitt stykki stressuð sko..

allavega held ég að þetta sé bara komið noooookkuð gott :p

þetta var geeeeðveik ferð
setning ferðarinnar var án efa; er detta einar í símiiiiin ? :'') (mjög erfitt að skrifa þetta, verður að heyra magna segja þetta :p)

vona að einhver hafi nennt að lesa þetta :')







adios ;*

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 21:22:59 / johannah

pleh

sæl ..

ákvað að skella inn einu bloggi :)
styttist í útskriftarferð, útskrift úr grunnskóla og allt það, næææs :D

í þessari viku eru bara einhverjar kynningar og þannig, í gær fórum við á 3 fyrirlestra -_-
fyrst var hjá samstöðu, svo bankanum og ekki einusinni spurja hvað þriðja var, ég var löngu dottin út þá :p
svo í dag fórum við á löggustöðina og sýsluskrifstofuna, sem var mikiið skemmtilegra en í gær :)
hef ekki hugmynd hvað við gerum á morgun, veit bara að ég þarf ekki að mæta fyrren kl 19 C:

á fimmtudaginn þurfum við að fá e'h dúkkudrasl,
megum ekki neita að taka þetta, skólinn neyðir okkur til þess
semsagt, við þurfum að vakna síðustu næturnar fyrir útskriftarferðina til þess að sjá um grenjandi DÚKKU!!  ég nenni þessu rugli ekki sko, þetta kostar geðveikt mikinn pening, fyrir skólann reyndar þannig að mer svosem skítsama um það en samt, ég skil ekki af hverju þau eru að eyða hundruðum þúsunda í dúkkur !!
ógeðslega bitur ut í þetta drasl ..
svo var þuríður að segja að einhver sem hún þekkti lenti i að hálsbrjóta dúkkuna sína x) semsagt ef þú heldur ekki nógu vel undir hausinn á henni eða e'h svoleiðis þá DEYR hún :') ..
rugl sko ..

en annars skilst mér að það sé Dalton ball á laugardaginn, hef reyndar ekkert séð það auglýst en við sjáum til :p
svo kl 7.45 sunnudagsmorguninn leggjum við af stað í útskriftarferðina og verðum þar þangað til miðvikudagskvöld.
get ekki beðið sko, þetta er geðveik dagskrá :D

ég er að bíða eftir að fá æfingaleyfið á vespuna,  búin að fara í 3 tíma, á semsagt alveg þónokkra eftir, og fer ekki í tíma fyrren eftir útskriftarferð held ég .. sem er þónokkur bömmer, en svona er þetta ..
get ekki beðið samt, það eru eiginlega alveg sömu réttindi með æfingaleyfið og prófið sjálft nema ég má bara keyra eigin vespu! :)
can't waait :þ

annars er ég í rólegheitunum að bíða eftir beggu, leiðist en þið fenguð blogg fyrir það þannig að gaman fyrir ykkur yay ? haha :p


nenni samt ekki meira, séééé ykkur bara seinna :p
:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 16:56:22 / BlogCentral

ný síða ?

halló :)
eg ákvað að láta vaða með að búa mér til nýja síðu ein.
er samt ekki hætt á beljunum, alls ekki :)
þær eru hins vegar held ég á leið í sláturhúsið, vona nú samt ekki :)

ég fór að hugsa, eru bloggsíður alveg dauðar ?
ég ætlaði að fara á netið, finna mér bloggsíðu til að skoða en var alveg strand.
er fólk hætt að gera þetta? er þetta 'dottið úr tísku' ? :p

allavega ætla ég að reyna að vera dugleg með þetta,
 en það er líka ykkar að halda mér gangandi,
ég nenni nú ekki að vera að gera blogg sem enginn skoðar :p
látið vita af ykkur

jóhanna :)


» 14 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 8353
Klukkan